Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 17. ágúst, var haldinn 315. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.49.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Hafrún Kristjánsdóttir (D), Halldór Bachmann (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Stein Olav Romslo (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson og Sigrún Sveinbjörnsdóttir.
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar 2027-2031 og úthlutun fjárheimilda 2027. SFS26080046
Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 10.06 tekur Helgi Áss Grétarsson sæti á fundinum.
-
Fram fer kynning og umræða um húsnæðismál grunnskóla og frístundastarfs. SFS26080007
Dagur Bollason, Guðni Guðmundsson, Daníel Benediktsson og Þórdís Eik Friðþjófsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir góða og upplýsandi kynningu á húsnæðismálum grunnskóla borgarinnar. Ráðið er vel meðvitað um þær áskoranir sem blasa við í málaflokknum. Ljóst er að víða er þörf á umfangsmiklum úrbótum og að viðhaldsþörfin kalli á enn frekari fjárframlög en hingað til hafa verið veitt. Jafnframt liggur fyrir að ástand húsnæðis hefur í mörgum tilvikum áhrif á daglega starfsemi og rekstur skólanna. Ráðið telur að húsnæðismál skóla verði meðal brýnustu verkefna borgarinnar á komandi árum og leggur áherslu á að markvisst verði unnið að því að skapa það fjárhagslega svigrúm sem þarf til að ráðast í nauðsynlegar endurbætur og uppbyggingu. Öruggt, heilnæmt og vel við haldið skólahúsnæði er ein af grunnforsendum góðs skóla- og frístundastarfs og verður áfram í forgangi.
-
Lagt fram rekstraruppgjör skóla- og frístundasviðs, janúar – mars 2026. SFS26080006
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga um skipan í valnefnd íslenskuverðlauna unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík:
Lagt er til að Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir taki sæti í valnefnd íslenskuverðlauna unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík.
Samþykkt. SFS26080039
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga um skipan í valnefnd hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs:
Lagt er til að Bjarni Fritzson, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Stein Olav Romslo verði skipuð í valnefnd hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs.
Samþykkt. SFS26080040
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um skóladagatal grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 2027-2028.
Samþykkt. SFS26080003
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. júní 2026, um samþykkt borgarstjórnar um símafrí í grunnskólum. MSS26060098
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs á afturköllun breytinga á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva. SFS25020020
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingar á reglum Reykjavíkurborgar um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva. SFS25020020
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingu á gjaldskrá frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva. SFS25020020
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingu á rekstri móttökudeildar vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd. SFS26050077
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um að leggja matsferilinn fyrir alla árganga í borgarreknum grunnskólum einu sinni á ári. SFS26060088
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um samstarfssamning við Móðurmál, samtök um tvítyngi, um afnot af húsnæði. SFS23090177
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um samstarfssamning við Móðurmál, samtök um tvítyngi, vegna kennslu barna í móðurmáli þeirra. SFS23090177
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 15. júlí 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Vinstrisins um kostnað við að leggja fyrir matsferil í öllum árgöngum grunnskóla, sbr. 22. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2026. SFS26060088
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 15. júlí 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins um kostnað við innleiðingu símafrís í grunnskóla, sbr. 23. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2026. SFS26060183
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 13. júlí 2026, um embættisafgreiðslu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, eitt mál. SFS26060274
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS26070077
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hvernig verður aðkomu skóla- og frístundaráðs háttað að vinnu með fjárhagsáætlun sviðsins fyrir árið 2027? Þá er sérstaklega átt við aðkomu fulltrúa minnihlutans og áheyrnarfulltrúa.
SFS26080053
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Í dag mæta kennarar aftur til starfa í grunnskólum borgarinnar. Hvernig verður símafrí framkvæmt í sérhverjum skóla í haust? Er lagt upp með viðbótarfjármagn til skóla sem vilja kaupa geymsluskápa í samræmi við kröfur í drögum að reglugerð um símafrí?
SFS26060183
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hver er áætlaður árlegur kostnaður við að útvega strætókort til nemenda í grunnskólum Reykjavíkurborgar? Hér er verið að vísa til reglna um strætókort til nemenda í grunnskólum Reykjavíkurborgar þar sem skilyrði fyrir afhendingu strætókorta/farmiða eru útlistuð. Hafði áður verið gert ráð fyrir því að gjaldfrelsi í strætó fyrir börn í grunnskóla myndi hafa áhrif á þennan kostnaðarlið skóla- og frístundasviðs?
SFS26080063
Fundi slitið kl. 11:43
Bjarni Fritzson Hafrún Kristjánsdóttir
Halldór Bachmann Helgi Áss Grétarsson
Sanna Magdalena Mörtudottir Stein Olav Romslo
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 17. ágúst 2026