Árbæjarlaug

Mán.–fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 9:00–22:00 

Fylkisvegur 9
110 Reykjavík

Séð yfir útisvæði Árbæjarlaugar í átt að glerhvelfingunni

Árbæjarlaug

Árbæjarlaug er ein vinsælasta fjölskyldulaug Reykjavíkur og þykir sérstaklega björt og rúmgóð. Þar er innilaug sem tengist útilaug, barnalaug, heitir pottar, einstakur kaldur pottur, gufubað, sána og vinsæl vatnsrennibraut. Laugin hentar vel fjölskyldum með börn og gestir hrósa sérstaklega hreinu umhverfi, góðri hönnun og afslappaðri stemningu. Laugin hefur lengi verið talin ein best hannaða hverfalaug borgarinnar og er vinsæl meðal heimamanna.

Aerial view of slide, hot tubs, and outdoor pool at Árbæjarlaug.

Aðstaða í og við Árbæjarlaug

  • 25 metra laug
  • Aðgengi í laug fyrir fatlaða
  • Barnalaug
  • Barnarennibraut
  • Eimbað
  • Fritt WiFi
  • Heitir pottar
  • Hlaupaleiðir
  • Innrauð sána
  • Innilaug
  • Kaldur pottur
  • Nuddpottur
  • Rennibraut
  • Sala á sundfatnaði
  • Sérklefi
  • Strandblak
  • Ungbarnaaðstaða
  • Útiklefar
  • Vaðlaug
  • Veitingasala
Looking up at the glass dome from the indoor pool at Árbæjarlaug

Aðgengi og sérklefar

Við viljum að öllum líði vel í sundlaugum Reykjavíkur. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, þægilega aðstöðu og fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur. 

Strandblak við Árbæjarlaug

Strandblak við Árbæjarlaug

  • Tveir strandblaksvellir
  • Greitt í afgreiðslu eins og þegar farið er í sund
  • Blakarar koma sjálfir með bolta
  • Hægt að bóka allt að 2 klukkutíma í einu
Walking bridge and slide at Árbæjarlaug

Ítarlegar upplýsingar um Árbæjarlaug

Vígsludagur Árbæjarlaugar var 30. apríl 1994. Stærð byggingarinnar eru 2.100 fermetrar en heildarstærð vatnsflata er um  670 fermetrar. Eimbað endurbyggt 2013 og Nuddpotturinn Nuddi var settur upp 2013. Tveir strandblakvellir voru settir upp 2015.

Aðrar upplýsingar

Skólasund og æfingar

Frá lok ágúst fram í júní má gera ráð fyrir því að hluti af laugum séu uppteknar undir skólasund og æfingar. Nánari upplýsingar er að fá í afgreiðslu í sundlauginni.