Rimaskóli - loftræsikerfi og innanhússfrágangur

Uppsetning fullbúins loftræsikerfis í tvær álmur Rimaskóla ásamt innanhússfrágangi.
2026 - 2027
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Framkvæmdin felur í sér uppsetningu á fullbúnu loftræsikerfi í tveimur álmum Rimaskóla. Loftræsikerfið verður fullhannað inn- og útsogskerfi með varmaendurvinnslu. Núverandi útsogskerfi verður lagt af en samhliða verða kerfisloft endurnýjuð, innveggir málaðir og salerni endurnýjuð. 

Framkvæmdinni verður áfangaskipt. Hafist verður handa á álmu 1 (syðri álmu) sumarið 2026 og áætlað að framkvæmdum ljúki á haustmánuðum sama árs. Áætlað er að hefja framkvæmdir á álmu 2 (nyrðri álmu) sumarið 2027 og að framkvæmdum ljúki þá um haustið.

Umfang framkvæmda kallar á að álmurnar séu tæmdar meðan framkvæmdum stendur. Tilfærslur á skólastarfi eru leystar innanhúss og í samstarfi við frístundaheimili. 

Hvernig gengur?

Maí 2026

Gengið að tilboði E. Sigurssðonar ehf fyrir innanhússfrágangi í fyrsta áfanga verkefnisins.

Mars 2026

Útboðsheimild samþykkt í borgarráði.

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

E. Sigurðsson ehf

Innanhússfrágangur í áfanga 1.
Síðast uppfært 13.08.2026