Götumarkaður í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi

Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi

Það mun allt iða af lífi þegar Listasafn Reykjavíkur opnar port Hafnarhússins og breytir því í spennandi götumarkað dagana 15. og 16. ágúst.

Boðið verður upp á markaðsstemningu í hjarta borgarinnar  þegar portið í Hafnarhúsi mun fyllast af yfir 40 spennandi og fjölbreyttum sölubásum með vintage-vörum, antík úr geymslunni, handverki, hönnun, bókum, vínylplötum og einstökum dýrgripum.

Fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að mæta en sérstakt tombólu- og sölusvæði verður ætlað börnum sem vilja koma með sitt eigið dót á tombólu og reyna á söluhæfileikana.  Ekki þarf að skrá sig sérstaklega á tomóblusvæðið heldur bara mæta til leiks.

Götumarkaður
Það kennir ýmissa grasa á götumörkuðum.

Götumarkaðurinn er haldinn í samstarfi við Visteyri og er ætlaður öllum sem hafa gaman af skapandi stemningu, hringrásarhagkerfinu og því að uppgötva óvænta fjársjóði í skemmtilegu umhverfi.

Á meðal seljenda eru Visteyri, NOWHERE, Wabi Sabi, Munir, Góði hirðirinn, Mino, Björkin Vintage og fleiri og fleiri!

Markaðurinn verður opinn frá kl. 12:00 til 17:00 helgina 15.-16. ágúst í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi við Tryggvagötu 17.

Öll velkomin!