Menningarnótt ein stór afmælisveisla

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri kynnti dagskrá Menningarnætur á Austurvelli í dag.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri kynnti dagskrá Menningarnætur á Austurvelli í dag.

Reykjavík á afmæli og er 240 ára í dag og því verður fagnað með stórri afmælisveislu á Menningarnótt sem haldin verður 22. ágúst í ár. 

Menningarnótt er alveg einstök þátttökuhátíð, þar sem íbúar, rekstraraðilar og listafólk bjóða upp á skemmtiatriði um alla miðborgina og það skapast alveg ótrúleg stemning og bætist alltaf við dagkrána á hverju ári. Vöfflukaffi, dans, tónlist, fimleikajóga, lúðrablástur, söngur, listsýningar og  margt fleira verður í boði á Menningarnótt. 

Setning Menningarnætur

Menningarnótt verður sett með pompi og prakt klukkan 12.30 á Klapparstíg hjá DJ Margeiri. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri setur hátíðina formlega og boðið verður upp á afmælisköku í tilefni afmælis borgarinnar.

DJ Margeir verður að venju með MOMENT á Klapparstíg líkt og fyrri ár. Á hverju ári bætir MOMENT við ógleymanlegum augnablikum í minningabankann þar sem tónlistin dunar og fólk dansar fram eftir kvöldi. Þess má geta að í ár ætlar DJ Margeir og MOMENT að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru. 

Skógræktarfélag Reykjavíkur heiðursgestir 

Heiðursgestir Menningarnætur er Skógræktarfélag Reykjavíkur sem fagnar 125 ára afmæli í ár. Boðið verður upp skemmtidagskrá í Ráðhúsinu – við bjóðum þau sérstaklega velkomin. Boðið verður upp á ilmsturtu, tálgun, Mugison tekur lagið og jafnframt verður ljósmyndasýningin „Frá rofabörðum til borgarskóga“.

Eitthvað fyrir alla

Dagskráin er fjölbreytt og það ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Meðal dagskrárliða í ár eru:

Acro Yoga  lifandi, sjónrænn og fjölskylduvænn hreyfilistarviðburður sem fer fram utandyra í hjarta Reykjavíkur á Klambratúni á Menningarnótt. 

Ingólfsfest: Ingólfsstræti breytist í hátíðarsvæði þar sem boðið verður upp á tískusýningu, listsýningu, tónlist ásamt fleiri skemmtilegum viðburðum.  DJ Eisi, Inspector Spacetime, ISSI, NUSSUN og HÚGÓ, ásamt fleirum munu stíga á stokk. 

Kveðið úr kirkjuturniKveðið úr kirkjuturni er hljóðgjörningur þar sem upptökur af íslenskum rímnakveðskap verða leiknar úr hátölurum í turni Hallgrímskirkju og hljóma yfir miðborg Reykjavíkur. 

Acro Yoga sýna listir sínar á Austurvelli
Acro Yoga sýna listir sínar á Austurvelli

Skrans: er árlegur hjólabrettaviðburður á Menningarnótt. Skrans fer nú fram á efstu hæð Traðarkots við Hverfisgötu og geta gestir kynnst þessari lifandi og litríku senu. Skrans/hjólabretta jam hefst klukkan 15:00 með fjölbreyttum atriðum til klukkan 20:00.

Útikaraoke á Steinbryggjunni: Karaokestýrur að þessu sinni eru systurnar Margrét Erla og Vigdís Perla Maack. Það verða sápukúlur, konfettí, vindvélar,(náttúrulega og með batteríi) og annað props. Skráning fer fram á staðnum og vinsamlega athugið að ekki komast öll lög að.

DEILDIN: er deild sem inniheldur einungis eitt lið, einn þjálfara og áhorfendur. DEILDIN er dansverk í formi fótboltaleiks.

Bílskúrshljómsveitir: Bílskúrshljómsveitir lýðveldisins koma út úr skúrum landsins á Menningarnótt 2026 og leika bara allskonar, fönk, blús, popp og rokk. Veislan fer fram í Gamla bíói.

 Hjartatorg Block Party: er hátíð tónlistar, menningar og samfélags sem tekur yfir Hjartatorgið á Menningarnótt og býður upp á lifandi borgarstemningu frá degi og fram á kvöld.og margt fleira.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á Listasafni Reykjavíkur og er ókeypis aðgangur. 

Djasskrakkar spiluðu djasstónlist í blíðunni á Austurvelli í dag. Hér eru þau ásamt borgarstjóra og fulltrúum lögreglu.
Djasskrakkar spiluðu djasstónlist í blíðunni á Austurvelli í dag. En þau munu spila á Borgarbókasafninu í Grófinni á Menningarnótt.

Frumskógarlegó, ratleikur, ævintýrasjálfa, Djasskrakkar og grímugleði verður á dagskrá Borgarbókasafnsins í Grófinni.

Tónlistin skipar stóran sess á Menningarnótt.  Tónaflóð Rásar 2 verður á Arnarhóli en þar koma meðal annarra fram JóiPé og Króli (og leynigestir) Árný Margrét, Spacestation,  Daði Freyr, Páll Óskar og Benni Hemm Hemm.

Bylgjan verður með 40 ára afmælistónleika í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Þar koma fram  Birgitta Haukdal, Friðrik Dór, Bandmenn, Stefán Hilmarsson, Kristmundur Axel, Erna Hrönn, Á móti sól og FM95BLÖ. Matarvagnar verða á staðnum með gómsæta rétti á boðstólum fyrir svanga gesti.

Fjölskyldan saman í borgina og saman heim

Menningarnótt er fjölskylduhátíð og henni lýkur klukkan 22.00 um kvöldið með flugeldasýningu. Lögð er áhersla á að fjölskyldan komi saman í miðborgina og fari saman heim. 

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri með lögreglumönnunum þeim Árna Friðleifssyni, aðalvarstjóri og Kristjáni Helga Þráinssyni á Austurvelli í dag.
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri með lögreglumönnunum þeim Árna Friðleifssyni og Kristjáni Helga Þráinssyni, á Austurvelli í dag

Þetta er líka í takt við átakið Verum klár sem Reykjavíkurborg stendur fyrir, þar sem áhersla er lögð á jákvæð skilaboð til ungs fólks og aðstandenda þeirra um samveru og heilbrigðan lífstíl. 

Við hvetjum öll til að vera klár almennt í lífinu. Taka góðar ákvarðanir og hugsa um hvert annað. Við berum öll ábyrgð hvert á öðru og að öllum líði vel.

Aðgengi og öryggismál

Gestir eru hvattir til að koma fótgangandi eða hjólandi í miðborgina eða með almenningssamgöngum. Vinsamlegast skoðið kort yfir götulokanir og upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt.

Kort af götulokunum á Menningarnótt 2026

Strætóskutlur aka til og frá bílastæðum við Laugardalshöll um Borgartún að Hallgrímskirkju með viðkomu á Hlemmi frá kl. 07.30–23.15.

Af öryggisástæðum verður miðborgin lokuð fyrir akandi umferð svo gestir geti notið dagskrár Menningarnætur.

Frá kl. 13.00 fimmtudaginn 20. ágúst verður Kalkofnsvegur, á milli Hverfisgötu og Geirsgötu, lokaður vegna uppsetningar á sviði við Arnarhól. Lokunin mun vara fram yfir Menningarnótt. Einungis viðbragðsaðilum verður heimilt að fara í gegnum lokunina. Þeir strætisvagnar sem alla jafna fara þessa leið fara hjáleið. Upplýsingar á straeto.is

Frá kl. 16.00 föstudaginn 21. ágúst verður Geirsgötu milli Kalkofnsvegar og Tryggvagötu lokað vegna undirbúnings Reykjavíkurmaraþons. Vegna þessa verður Sæbraut lokuð frá Faxagötu. Lokunin mun vara fram yfir Menningarnótt.

Almennt gilda götulokanir frá klukkan 07.00 að morgni laugardagsins 22. ágúst og standa til klukkan 01.00 eftir miðnætti, nema annað sé tekið fram.

Í samráði við rafskútufyrirtækin verður aðeins hægt að leggja rafskútum á ákveðnum svæðum í jaðri hátíðarsvæðis Menningarnætur. 

Dagskrána má nálgast á menningarnott.is

Gleðilega hátíð!