Borgarráð - Borgarráð fimmtudaginn 13. ágúst 2026 nr. 5831

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 13. ágúst, var haldinn 5831. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Hulda Hólmkelsdóttir, Theódór Kjartansson og Þorsteinn Gunnarsson. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð tilnefni þrjá fulltrúa í styrkjahóp ráðsins í samræmi við reglur um styrkveitingar borgarráðs.
    Samþykkt að tilnefna Einar Þorsteinsson, Rúnar Frey Gíslason og Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur í hópinn. MSS26080037

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 13. ágúst 2026, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn SORPU bs.

    Samþykkt að tilnefna Sigrúnu Ástu Einarsdóttur sem aðalmann í stjórn SORPU og Ragnhildi Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur til vara. MSS26080034

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða tillögu nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar, dags. 13. ágúst 2026, um skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn Strætó bs.

    Samþykkt að tilnefna Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur í stjórn Strætó og Friðjón Friðjónsson til vara. MSS26080033

    Fylgigögn

  4. Lagt er til að Magnea Gná Jóhannsdóttir taki sæti sem varamaður í samstarfsnefnd skíðasvæðanna. MSS26060021
    Samþykkt. 

  5. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 28. júlí 2026. MSS26010008

  6. Lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 11. og 12. ágúst 2026.
    7. liður fundargerðarinnar frá 12. ágúst er samþykktur. MSS26010020
     

    Fylgigögn

  7. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 11 mál (MSS26070048, MSS26070049, MSS26070050, MSS26070051, MSS26070006, MSS26050036, MSS24100050, MSS26080019, USK26070286, VEL26070067). MSS26080014

    Fylgigögn

  8. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26060130

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að hefja söluferli einbýlishússins að Snekkjuvogi 21 í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir og Oddrún Helga Oddsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26080013

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 11. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að gerð verði breyting á samþykkt um gatnagerðargjald í Reykjavík, nr. 191/2025, þannig að við 1. mgr. 8. gr. bætist nýr d-liður, svohljóðandi: „d. Vegna sameiginlegra bifreiðageymslna fyrir þrjár eða fleiri bifreiðar skal greiða 10% af fermetragjaldi þeirra húsa, sem þær eiga að þjóna.“

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar þessari breytingu sem leiðréttir óheppilega gjaldtöku frá síðasta kjörtímabili og skapar að nýju raunhæfa hvata til að byggja bílastæði neðanjarðar. Með hækkun gatnagerðargjalda á síðasta kjörtímabili jókst kostnaður við gerð bílakjallara verulega, með þeim afleiðingum að í mörgum uppbyggingarverkefnum varð óhagkvæmt eða jafnvel óraunhæft að koma bílastæðum fyrir neðanjarðar. Það er stefna þessa meirihluta að þar sem aðstæður leyfa eigi frekar koma við bílum fyrir neðanjarðar og nýta verðmætt borgarland ofanjarðar fyrir fólk. Minna land undir bílastæði getur skapað meira rými fyrir gróður, leiksvæði, torg, gönguleiðir og önnur sameiginleg svæði sem bæta umhverfi og lífsgæði íbúa. Með breytingunni er jafnframt verið að fylgja eftir einu af verkefnum meirihlutans á verkefnalisti.is: að veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara. Hér er því bæði verið að efna skýrt loforð og breyta hvötum borgarinnar í rétta átt. Gjaldtaka borgarinnar á ekki að vinna gegn góðu skipulagi heldur styðja við það og stuðla að betri nýtingu borgarlandsins til framtíðar.

    Ólöf Örvarsdóttir og Oddrún Helga Oddsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26060453

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 10. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að selja eignarhlut Reykjavíkurborgar í Aðalstræti 9, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir og Oddrún Helga Oddsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26070175

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 7. júlí 2026, varðandi aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til umsagnar velferðarráðs og skóla- og frístundaráðs.

    Hanna Borg Jónsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Steinn Jóhannsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26070034

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakkar góða kynningu á aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins og fagnar þeirri auknu samvinnu sem hún boðar. Áætlunin byggir á sex meginmarkmiðum og 21 aðgerð hvar áhersla er meðal annars lögð á samþætta þjónustu, bætta líðan barna, forvarnir, samstarf heimila og skóla, öryggi og aukið jafnræði barna. Mikilvægt er að sveitarfélögin og aðrir þjónustuveitendur vinni saman að samræmdara verklagi, bættu upplýsingaflæði og sameiginlegum lausnum. Börn og fjölskyldur eiga ekki að finna fyrir skilum milli kerfa heldur fá rétta þjónustu á réttum tíma. Með aukinni samvinnu getum við brotið niður múra, lært hvert af öðru og nýtt betur það sem þegar hefur gefist vel. Við leggjum jafnframt áherslu á að með þessari vinnu fáist skýr mynd af stöðunni í dag: hvar helstu áskoranirnar liggja, hvaða vandamál við ætlum að leysa og hvaða mælanlega árangri við viljum hafa náð eftir fjögur ár. Áætlunin gerir ráð fyrir mælikvörðum fyrir einstakar aðgerðir, árlegri framvinduskýrslu og reglulegu endurmati, sem á að gera okkur kleift að fylgja árangrinum eftir. Þetta styður beint við verkefnalista meirihlutans um áframhaldandi innleiðingu farsældarlaganna og snemmtækan stuðning við börn. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og þess að sjá þessa mikilvægu vinnu skila mælanlegum árangri fyrir börn og fjölskyldur.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir metnaðarfulla vinnu við gerð fyrstu aðgerðaáætlunar Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins og lýsa stuðningi við þær fjölmörgu aðgerðir sem ætlað er að efla samstarf, samræma verklag og bæta upplýsingaflæði milli þeirra aðila sem bera sameiginlega ábyrgð á farsæld barna. Að mati fulltrúa Samfylkingarinnar mætti setja fram enn skýrari mynd af þeim áskorunum sem börn og fjölskyldur á höfuðborgarsvæðinu glíma við í dag og hvernig þær aðgerðir sem hér eru lagðar til eiga að bregðast við þeim. Ríkisendurskoðun hefur bent á að góð samhæfing skili takmörkuðum árangri ef þjónustu eða úrræði skortir. Í því ljósi teljum við mikilvægt að farsældarráð verði ekki einungis vettvangur til að samræma verklag og upplýsingaflæði heldur einnig sameiginleg rödd þeirra sem starfa á vettvangi þjónustunnar og geta bent á hvar stuðning eða úrræði skortir. Skýrari tenging milli þarfa barna og fjölskyldna, þeirra aðgerða sem lagðar eru til og þeirrar framtíðarsýnar sem stefnt er að myndi styrkja áætlunina enn frekar.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 11. ágúst 2026, þar sem fyrsta útgáfa stjórnskipunaráætlunar aðgerðarstjórnar á höfuðborgarsvæðinu er lögð fram til kynningar ásamt fylgiskjölum.
    Frestað. MSS26060048

  14. Fram fer kynning á fyrirkomulagi funda borgarráðs. MSS26060065

    -    Kl. 10:38 víkur borgarstjóri af fundinum.

  15. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvernig var staðið að greiningum og rýni á uppsögnum upplýsingafulltrúa og verkefnastjóra á skrifstofu borgarstjóra og áhrifum þeirra? Hver sinnir núna upplýsingagjöf til starfsfólks, fjölmiðla og borgarbúa? Hvernig verður staðið að hlutlausri og ópólitískri upplýsingagjöf frá Reykjavíkurborg framvegis? Stendur til að endurráða í einhver störf á skrifstofu borgarstjóra og ef svo er, hvenær? Hversu margar nýjar ráðningar hafa átt sér stað eftir að nýr meirihluti tók við, bæði tímabundnar og ótímabundnar? MSS26080045

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  16. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvaða framkvæmdir eru í gangi á Sævarhöfða 31 og af hverju hafa hjólabúar ekki verið upplýstir um þær? Nú þegar búið er að rifta leigusamningi við hjólabúa, hefur borgin einhver áform um að finna aðra staðsetningu fyrir þau? MSS26080046

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.

  17. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvaða skólar hafa útvistað ræstingum og sagt upp skólaliðum síðastliðin fimm ár? Eru fleiri uppsagnir skólaliða áætlaðar? Hvaða fyrirtæki sjá um ræstingar í þeim skólum þar sem þeim hefur verið útvistað og er gert ráð fyrir óháðum uppmælingum í samningum þeirra? MSS26080047

Fundi slitið kl. 10:53

Einar Þorsteinsson Ari Edwald

Bjarni Guðjónsson Björg Magnúsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarráð 13.8.26 prentvæn útgáfa