Umhverfis- og skipulagsráð
Ár 2026, þriðjudaginn 11. ágúst, kl. 10:03 var haldinn 382. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn á Sjóminjasafninu að Grandagarði 8. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúinn Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Ásdís Ásbjörnsdóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Brynjar Þór Jónasson, Hreinn Ólafsson, Hrönn Hrafnsdóttir, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Guðni Guðmundsson, Karl Eðvaldsson, Lilja Sigurbjörg Harðardóttir, Matthías Bernhöj Daðason, Ragnheiður Sigvaldadóttir, Tómas G. Gíslason, Elísabet Dröfn Erlingsdóttir, Inga Sveinsdóttir, og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á fyrirkomulagi fjármálafundarins.
- Kl. 10:09 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum. USK26080031
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á forsendum og úthlutun fjárheimilda fyrir árið 2027.
Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26080031
Fylgigögn
-
Fram fer kynning í trúnaði á áskorunum og skuldbindingum sviðsins sem skilað var til fjármála og áhættustýringasviðs (FAS) vegna fjárhagsáætlunar 2027 - 2031. USK26080031
-
Fram fara kynningar skrifstofustjóra umhverfis- og skipulagssviðs á sínum skrifstofum, hvaða verkefni eru bundin og hverju væri hægt að breyta. USK26080031
- Kl. 12:27 tekur Haraldur Sigurðsson sæti á fundinum.
- Kl. 12:45 víkur Jóhanna Kristrún Birgisdóttir af fundi og Sigurjóna Guðnadóttir tekur við fundarritun.
-
Fram fer umræða um forgangsröðun og yfirferð umhverfis- og skipulagssviðs. USK26080031
- Kl. 14:00 víkja Ari Edwald og Pétur Hafliði Marteinsson af fundi.
- Kl. 15:10 víkur Líf Magneudóttir af fundi.
Fundi slitið kl. 15:32
Guðný María Jóhannsdóttir Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
Friðjón R. Friðjónsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 11. ágúst 2026