Grafarvogslaug
Mán.–fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 9:00-22:00
Dalhús 2
112 Reykjavík
Grafarvogslaug
Grafarvogslaug er sérstaklega vinsæl hverfislaug og mikið sótt af fjölskyldum og íþróttafólki. Laugin býður upp á góða inni- og útilaug, barnalaug, heita potta, kaldan pott, sánu og eimbað auk góðrar aðstöðu fyrir sundkennslu og æfingar. Laugin er þekkt fyrir fjölbreytta aðstöðu og gott andrúmsloft til bæði slökunar og hreyfingar. Á staðnum eru stórar rennibrautir sem njóta mikilla vinsælda.
Aðstaða í og við Grafarvogslaug
- 25 metra laug
- Aðgengi í laug fyrir fatlaða
- Barnalaug
- Barnarennibraut
- Eimbað
- Fritt WiFi
- Heitir pottar
- Hlaupaleiðir
- Hreystibraut
- Innrauð sána
- Innilaug
- Kaldur pottur
- Nuddpottur
- Rennibraut
- Sala á sundfatnaði
- Sána
- Sérklefi
- Ungbarnaaðstaða
- Vaðlaug
- Veitingasala
- Wipeout braut
Aðgengi og sérklefar
Við viljum að öllum líði vel í sundlaugum Reykjavíkur. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, þægilega aðstöðu og fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur.
Ítarlegar upplýsingar um Grafarvogslaug
Skóflustungan var tekin 13. desember 1996 og var fyrsti áfangi laugarinnar opnaður 3. maí 1998. Grafarvogslaug hefur verið að byggjast smátt og smátt frá opnunardegi. Lokið var við innilaug og nuddpott haustið 1998 og eimbað vorið 1999. Leiklaug og rennibraut voru opnaðar 25. apríl 2002.
Dagskrá
Samflot í Grafarvogslaug
Sérklefi
Sérklefi er lokaður á eftirfarandi tímum í Grafarvogslaug:
Mánudaga 08:30-10:00
Þriðjudaga 08:20-10:50 og 13:10-13:50
Fimmtudaga 08:40-13:50
Skólasund og æfingar
Frá lok ágúst fram í júní má gera ráð fyrir því að hluti af laugum séu uppteknar undir skólasund og æfingar. Nánari upplýsingar er að fá í afgreiðslu í sundlauginni.