Laugardalslaug

Mán.-fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 8:00-22:00
 

Sundlaugavegur 30
105 Reykjavík

Overview of outdoor facilities at Laugardalslaug Pool Pool

Laugardalslaug

Laugardalslaug er stærsta sundlaug landsins og ein þekktasta sundlaug Reykjavíkur. Hún býður upp á mjög fjölbreytta aðstöðu: 50 metra útilaug, innilaug, barnalaugar, gufubað, kaldan pott og vatnsrennibrautir.

 

Laugin er vinsæl bæði meðal ferðamanna og heimamanna. Í Laugardalslaug er einnig viðurkennd keppnislaug fyrir sundíþróttir. Það er alltaf góð stemning í Laugardalslaug. 

Sundlauganótt

Aðstaða í og við Laugardalslaug

  • 50 metra laug
  • Aðgengi í laug fyrir fatlaða
  • Barnalaug
  • Barnarennibraut
  • Eimbað
  • Fritt WiFi
  • Heitir pottar
  • Hlaupaleiðir
  • Hreystibraut
  • Innilaug
  • Kaldur pottur
  • Klór framleiddur úr salti
  • Nuddpottur
  • Rennibraut
  • Sala á sundfatnaði
  • Sérklefi
  • Sjópottur
  • Strandblak
  • Ungbarnaaðstaða
  • Útiklefar
  • Vaðlaug
  • Veitingasala
Yfirlitsmynd yfir tóma Laugardalslaug um vetur, hrím og snjór yfir öllu og lauginn kyrr, logn

Aðgengi og sérklefar

Við viljum að öllum líði vel í sundlaugum Reykjavíkur. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, þægilega aðstöðu og fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur. 

Strandblak við Laugardalslaug

Strandblak við Laugardalslaug

  • Tveir strandblakvellir
  • Greitt í afgreiðslu eins og þegar farið er í sund
  • Blakarar koma sjálfir með bolta
  • Hægt að bóka allt að 2 klukkutíma í einu
Beach volleyball court, large slide, and grandstand at Laugardalslaug Pool

Ítarlegar upplýsingar um Laugardalslaug

Talið er að sund- og baðferðir hafi verið tíðkaðar frá alda öðli í Laugardalnum. Sagt er frá baðlaug suður af Laugarnesi 1772. Sundkennsla hófst árið 1824, að vísu eingöngu fyrir pilta. Árin 1907-1908 lét bæjarstjórn Reykjavíkur hlaða laugarker úr tilhöggnum steini og er það trúlega fyrsta íþróttamannvirkið sem bærinn byggði. Síðan hefur sund verið iðkað í Laugardalnum.

Aðrar upplýsingar

Skólasund og æfingar

Frá lok ágúst fram í júní má gera ráð fyrir því að hluti af laugum séu uppteknar undir skólasund og æfingar. Nánari upplýsingar er að fá í afgreiðslu í sundlauginni.