16341 Akstur almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu 2028-2036. EES
Óskað er eftir umsóknum í forval vegna Akstur almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu 2028-2036, EES útboð nr. 16341
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. óskar eftir áhugasömum aðilum til þátttöku í samkeppnisútboði vegna aksturs almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu 2028-2036.
Forvalsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:30 þann 14. ágúst 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 17. september 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026.