Umsóknir og leyfi
Viðburðir með veitingasölu á Menningarnótt
Þeir sem ætla að vera með veitingasölu á sínum viðburði á Menningarnótt skulu tryggja að fylgja settum reglum.
Sækja þarf um starfsleyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar til þess að vera með veitingasölu.
Ef áfengisveitingar verða á viðburði þarf að sækja um tækifærisleyfi til áfengisveitinga hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu.
Útibarir
Staðir sem eru nú þegar með útiveitingaleyfi þurfa ekki að sækja um frekara leyfi nema ef ætlunin er að vera með afgreiðslu áfengisveitinga utandyra, s.s. útibar. Ef ætlunin er að vera með útibar þarf að sækja um tækifærisleyfi til áfengisveitinga til viðbótar við gilt rekstrarleyfi.
- Útibarir verða einungis heimilaðir á veitingastöðum með útiveitingaleyfi
- Enginn getur verið með afgreiðslu áfengisveitinga utandyra nema vera með tækifærisleyfi til áfengisveitinga
- Afgreiðsla áfengisveitinga þarf að vera staðsett innan þess svæðis sem útiveitingaleyfið nær yfir
- Áfenga drykki má ekki bera út af útiveitingasvæðinu
Viðburðir án veitinga á Menningarnótt
Þeir sem ætla að vera með viðburð án veitinga þurfa einnig að fylgja reglum.
Ef viðburður er innandyra þarf húsnæði að vera með starfsleyfi fyrir samkomuhús.
Sótt er um það hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, en einnig þarf að sækja um tækifærisleyfi hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu.
Ef viðburður er utandyra þarf ekki að sækja um frekara leyfi en hjá rekstraraðila, þ.e. Menningarnótt.